Í tilefni af færslu á blogginu hennar Kolbrúnar, smelli ég inn þessari mynd. Kolbrún var í gulum bol og góðu skapi, ég er í bleikum aumingjabuxum, með appelsínuhúð og ekkert í neitt yfirþyrmandi frábæru skapi. Ég veit ekki alveg hvort þetta kemur ykkur beinlínis við, en ég er svo meðvirk að ég verð bara að vera eins og hún. -Það að hún vældi í mér í hálftíma að taka mynd af aumingjabuxunum mínum gæti jú hugsanlega haft eitthvað með þessa ákvörðun að gera, ef satt skal segja...
Parketið lúkkar vel
Posted by Ella Bella | 1:23 e.h.