Trúarbrögð og lakkrísát
Jahá! Ég vissi nú alltaf að ég væri doldið non-kristin, en að ég væri búddisti er nú eitthvað sem ég hefði seint látið mér detta í hug! Ég fann þetta próf hjá honum Djöfsa mínum og stóðst að sjálfsögðu ekki freistinguna að taka það. Niðurstaðan varð óneitanlega athyglisverð:
Which religion is the right one for you?
En jæja, hvað um það... Eins og alþjóð veit væntanlega þá er ég stödd í nafla alheimsins; Búðardal, yfir páskana. Hér er ósköp vænt að vera, og alveg ágætt að láta dekra undir rassinn á sér af foreldrunum. Við Tony keyptum okkur risastóran poka af lakkrískonfekti og átum það með bestu lyst í gær - með þeim óhjákvæmilegu afleiðingum að við erum búin að múra dolluna hennar mömmu vel að innan í dag!
Hér eru líka stödd frændsystkin mín tvö, ferlega gaman að sjá þau aftur - ég geri allt of lítið af því. Annað þeirra býr í Danmörku og sést þ.a.l. lítið í kringum mig og hitt mun að öllum líkindum fara að flytjast búferlum þangað einnig í sumar. Svo maður svona reynir að njóta þessarra samvista eftir fremsta megni - þótt þau geri sitt allra besta til að koma í veg fyrir að það gangi almennilega upp. Þau virðast hafa náð sér í bókina "Hvernig pirra skal The-Lil" á einhverju satanísku bókasafni og lesið hana spjaldanna á milli og tileinkað sér öll ráðin í henni af heilum hug.
EEEN...
Ég á mér enn minningarnar frá því ég skipti á kúkableijunum þeirra og dúllaði með þau agnarponsulítil, svo ég ylja mér við þær. Og það eru einmitt þessar minningar sem hafa að öllum líkindum bjargað lífum þessarra brjálæðinga hingað til! :D Því ef ég ætti þær ekki væri ég eflaust búin að verða mér úti um stóran pott, helling af olíu, eldivið og kveikjara.... *illgirnislegt glott af verstu sort*
Buddhism | 79% | ||
Satanism | 71% | ||
agnosticism | 67% | ||
atheism | 63% | ||
Islam | 63% | ||
Hinduism | 50% | ||
Paganism | 50% | ||
Christianity | 33% | ||
Judaism | 29% |
Which religion is the right one for you?
En jæja, hvað um það... Eins og alþjóð veit væntanlega þá er ég stödd í nafla alheimsins; Búðardal, yfir páskana. Hér er ósköp vænt að vera, og alveg ágætt að láta dekra undir rassinn á sér af foreldrunum. Við Tony keyptum okkur risastóran poka af lakkrískonfekti og átum það með bestu lyst í gær - með þeim óhjákvæmilegu afleiðingum að við erum búin að múra dolluna hennar mömmu vel að innan í dag!
Hér eru líka stödd frændsystkin mín tvö, ferlega gaman að sjá þau aftur - ég geri allt of lítið af því. Annað þeirra býr í Danmörku og sést þ.a.l. lítið í kringum mig og hitt mun að öllum líkindum fara að flytjast búferlum þangað einnig í sumar. Svo maður svona reynir að njóta þessarra samvista eftir fremsta megni - þótt þau geri sitt allra besta til að koma í veg fyrir að það gangi almennilega upp. Þau virðast hafa náð sér í bókina "Hvernig pirra skal The-Lil" á einhverju satanísku bókasafni og lesið hana spjaldanna á milli og tileinkað sér öll ráðin í henni af heilum hug.
EEEN...
Ég á mér enn minningarnar frá því ég skipti á kúkableijunum þeirra og dúllaði með þau agnarponsulítil, svo ég ylja mér við þær. Og það eru einmitt þessar minningar sem hafa að öllum líkindum bjargað lífum þessarra brjálæðinga hingað til! :D Því ef ég ætti þær ekki væri ég eflaust búin að verða mér úti um stóran pott, helling af olíu, eldivið og kveikjara.... *illgirnislegt glott af verstu sort*
Þá veit maður það, búddisminn rétt hafði kristnina hjá mér.
Posted by
Crazy in Love |
7:28 e.h.